Tölvubókhald
Breytt/endurhannað
Námskeiðið er
m.a. ætlað þeim sem hafa lokið Bókhaldi I (og Bókhaldi II) og öðrum þeim sem
vilja öðlast þekkingu í færslu bókhalds í tölvu með notkun
tölvubókhaldsforrits fyrir minni fyrirtækja. Þá er námskeiðið ennfremur
hentugt starfandi skrifstofu og verslunarfólki sem hefur bókhaldsgrunn en
hefur hug á að kynnist tölvufærðu bókhaldi. Á þessu tölvubókhaldsnámskeiði
er kennt á Dk-bókhaldsforritið, fjárhagsbókhald. Þátttakendur fá sendar
nemendaútgáfu af Dk bókhaldsforritinu á geisladiski og sérstakt
viðurkenningarskjal að námskeiðinu loknu.
Markmið:
Eftirfarandi efni er m.a. tekið fyrir á námskeiðinu:
-
Undirstöðuatriði tölvubókhalds
- Hvernig
tölvubókhald byggir á hefðbundnu bókhaldi
-
Bókhaldshringrásin í tölvufærðu bókhaldi
-
Bókunarbeiðni fyrir tölvubókhald útbúin
-
Virðisaukaskattsflokkar og bókun VSK,virðisaukaskattskil
- Uppsetning
bókhaldslykla, umhverfi, flýtilyklar
- Færsluriti
dagbókar, deildskipting, víddir, afmörkun
- Rekstrar-og
efnahagsreikningur, aðalbók
-
Leiðréttingarfærslur, bakfærslur
-
Gagnaflutningar út úr Dk-forritinu
- Varðveisla
rafrænna gagna, kröfur til rafrænna bókhaldskerfa
Vinnulag:
Námskeiðið fer fram í fjarnámi og stendur yfir í 4
vikur. Námskeiðsgögn eru á rafrænu formi á netinu. Nýjustu kennsluaðferðir
í fjarnámi notaðar. Fjöldi hagnýtra verkefna leyst á námskeiðstímanum.
Æskilegt að fyrir hendi sé lágmarkskunnátta í töflureikningum Excel.
Tölvubókhaldsverkefnin eru leyst í Dk-viðskiptahugbúnaðinum og lausnir
þátttakenda eru sendar beint út úr Dk-forritinu til kennara.
Umfang:
40 kennslustundir
Umsjón:
Vilhjálmur Geir Siggeirsson viðskiptafræðingur
TIL BAKA Á FORSÍÐU
|