|
Verkfæri í námi og kennslu. Verkfærakista Google á Internetinu. Allir þekkja Google leitarvélina en margir vita ekki að Google býður einnig upp á ókeypis tölvupóstkerfi, ritvinnslu, töflureikni, glærugerð og vefsíðutól og hýsingu gagna á Internetinu. Það er hægt að semja texta, reikna og búa til kynningu á svæði hjá Google og síðast en ekki síst að hýsa þar öll gögn og deila gögnum með ákveðnum aðilum sem eigandi svæðis hjá Google samþykkir. Það er hægt að vinna í Google í hvaða Internettengdri tölvu sem er og hvar sem er. Pappírslaus kennsla og nám. Markmið: Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti notað verkfæri Google í námi og kennslu. Þeir læri að nýta sér tölvupóstkerfi Google til samskipta við nemendur, kennara og forráðamenn. Geti leiðbeint nemendum hvernig standa skuli að upplýsingaleit á Google og hvernig vinna skuli úr þeim upplýsingum í tengslum við annað nám nemenda. Kunni skil á því hvernig hægt er að búa til námsgögn og verkefni einn eða með öðrum í ritvinnslu, töflureikni og glærukynningu í verkfærakistu Google og hýsa allt á einum stað hjá Google. Geti búið til einfalda vefsíðu með vefsíðutóli Google sem inniheldur gagnvirkni, fjölbreytt og fræðandi námsefni í texta og myndum og þverfagleg verkefni nemenda. Efnisatriði sem farið er í á námskeiðinu:
Viðfangsefni: Þátttakendur þjálfist í að nota verkfæri Google í námi og kennslu. Þeir fá leiðsögn í því hvernig hægt er að leita upplýsinga á netinu að fjölbreyttu efni og nýta upplýsingarnar til að gera þverfaglegt námsefni og verkefni í ritvinnslu, töflureikni og glærugerð. Þátttakendur búa til einfaldan vef í samráði við kennara. Vinnulag: Þátttakendur vinna þverfagleg verkefni tengd námsefni sem þeir kenna í grunnskólum og nota til þess verkfæri í Google eins og ritvinnslu, töflureikni og glærukynningu. Auk þess sem þátttakendur búa til einfalda heimasíðu. Þátttakendur meta kynningu og heimasíðu hvers og eins ásamt kennara. Umfang: 40 klst Kennari: Kristín Helga Guðmundsdóttir, M.Ed í tölvu- og upplýsingatækni |