Fjarkennsla.com - símenntun og ráðgjöf: Áfangar Innskrá

Deildir/brautir:


Hvernig get ég lesið ársreikning fyrirtækisins míns?

kennari: Vilhjálmur Siggeirsson
kennari: Kristín Helga Guðmundsdóttir

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem ætla sér að að fylgjast vel með bókhaldi í minni fyrirtækjum og vilja öðlast þekkingu og fá yfirlit yfir rekstur fyrirtækis með að hafa heildarsýn yfir samhengi reksturs-og efnahagsreiknings minni fyrirtækis og gerð sjóðstreymis og til að átta sig á samhengi þessara þátta ásamt ýmsum kennitölum sem hægt er að stilla upp til að bera saman árangur í rekstri milli tímabila. Námskeiðið hentar vel þeim sem vilja vera sem best sjálfbjarga við að geta áttað sig á hvernig er best að lesa ársreikning minni fyrirtækja, ábendingar og varúð í því sambandi. Þátttakendur fá sérstakt viðurkenningarskjal að námskeiðinu loknu.


Skattskil fyrirtækja

kennari: Vilhjálmur Siggeirsson

Þessi áfangi krefst innskráningarlykils

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem ætla sér að sjá um bókhald eða þeim sem sjá um bókhald í minni fyrirtækjum og vilja öðlast þekkingu á margháttuðum skattskilum til ríkissjóðs, m.a. staðgreiðslu, tryggingagjald og virðisaukaskattskil fyrirtækja. Námskeiðið hentar vel þeim sem vilja vera sem best sjálfbjarga við ýmis skattamál fyrirtækja. Þátttakendur fá sérstakt viðurkenningarskjal að námskeiðinu loknu.


Bókhald I

Teacher: Vilhjálmur Siggeirsson

Þessi áfangi krefst innskráningarlykils

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem ætla sér að sjá um bókhald í fyrirtæki og hafa nánast enga eða takmarkaða undirstöðu í bókhaldi.  Þátttakendur sem taka Bókhald I geta síðan tekið næsta námskeið Bókhald II sem er fyllra og þar sem bókfærslan þyngist stig af stigi.  Þá er hægt að taka Tölvubókhaldið sem seinni áfanga á bókhaldsbraut. Hér er yfirferð hægari og námsefni fyllra en á Heildstæða bókhalds-og tölvunámskeiðinu. Þátttakendur fá sérstakt viðurkenningarskjal að námskeiðinu loknu.


Bókhald II

kennari: Vilhjálmur Siggeirsson
kennari: Kristín Helga Guðmundsdóttir

Þessi áfangi krefst innskráningarlykils

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem hafa lokið Bókhaldi I og öðrum þeim sem vilja öðlast frekari færni í bókhaldi minni fyrirtækja. Rökrétt framhald fyrir þá sem hafa lokið þessu námskeiði og Bókhaldi I er Tölvubókhaldsnámskeiðið, þar sem fært er í Dk-bókhaldsforritinu.


Heildstætt bókhalds- og tölvubókhaldsnámskeið

kennari: Vilhjálmur Siggeirsson

Þessi áfangi krefst innskráningarlykils

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem ætla sér að sjá um bókhaldið eða þeim sem sjá um bókhald í minni fyrirtækjum og vilja öðlast þekkingu á viðfangsefninu frá handfærðu bókhaldi til færslu bókhalds í bókhaldsforriti í tölvu. Þá er námskeiðið hentugt  einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur sem vilja vera sjálfbjarga vmeð bókhaldið.  Töflureiknir og viðskiptaforritið Dk er aðallega notað. Á þessu námskeiði hafa verið dregin saman aðalatriði námskeiðanna Bókhald I og Bókhald II og Tölvubókhald og er yfirferð hraðari og verkefni færri en á hverju einstöku námskeiði. Þátttakendur fá sérstakt viðurkenningarskjal að námskeiðinu loknu.


Tölvubókhald

Námskeiðið er m.a. ætlað þeim sem hafa lokið Bókhaldi I (og Bókhaldi II) og öðrum þeim sem vilja öðlast þekkingu í færslu bókhalds í tölvu með notkun tölvubókhaldsforrits fyrir minni fyrirtækja.


Nafn áfangans hér

kennari: Fjarkennsla.com - Símenntun og ráðgjöf

Hér er að finna könnun sem send er á netföng leikskólastjóra og leikskólakennara víða um land. Tilgangurinn með könnuninni er að kanna hvaða tölvunámskeið henta í leikskólastarfi og hvenær ársins og á hvaða tíma best er að bjóða leikskólakennurum upp á námskeið.

Bestu kveðjur,
Kristín Helga Guðmundsdóttir, menntunarfræðingur



Ekki innskráður. (Innskrá)